Kennsla í heimahúsum (Photoshop/InDesign)

Vegna ferðar minnar umhverfis hnöttinn hefur ekkert nýtt komið hingað inn.

En nú hef ég ákveðið að í stað þess að bjóða kennslu hér á netinu að koma frekar í heimahús og kenna grunnatriði Photoshop. 

Einkatímar þessir eru aðallega fyrir fólk sem kann ekkert á Photoshop en langar til að læra eða prófa.

Einnig kemur til greina kennsla á InDesign (forrit til að búa til plaköt, bæklinga, boðskort og bækur) ef fólk vill, eða samtvinna bæði forritin saman. Það fer algjörlega eftir því hvernig fólk vill hafa hlutina.

Fólk þarf sjálft að vera með Photoshop uppsett á eigin tölvu. Og í lok fyrsta tímans fær fólk glósur frá tímanum til að halda áfram að æfa sig. Engrar sérstakar þekkingar er krafist en skilyrði er að fólk kunni á stýrikerfi Apple eða Windows og skilji einföldustu aðgerðir (My Computer, opna forrit, senda tölvupóst, o.s.frv.)

 

Kennslugjald er 1.000 krónur og 1.500 krónur á hvern nemanda.

Séu t.a.m. 3 manneskjur í kennslu kostar það á hópinn 5.500.- á klukkutímann / og að sama skapi kostar 2.500 fyrir einn nemanda.

Hámarks fjöldi nemanda í hvert sinn eru 4 manneskjur.

(Photoshop)

Í fyrsta tíma er farið yfir Tools pallettuna, flýtihnappa og gerð smáverkefni með helstu tólunum. – Í lok tímans fær nemandi stuttar glósur úr tímanum til að hafa til hliðar.

Í öðrum tíma er farið yfir kennslu og mikivægi “Layer” og verkefni unnið í samræmi við það.

Í þriðja tíma er farið í almennari verkefni einsog að fjarlægja bólur, hvíta tennur, gera augu fallegri og þess háttar.

Ef fólki finnst það þurfa lengri tíma til að átta sig eða koma sér í gang er það minnsta málið

(InDesign)

Farið er almennt í hvernig gera má bók, bækling, plakat eða boðskort og setja inn myndir og stilla texta. Farið er yfir helstu aðgerðir og flýtihnappa. Tíminn fer eftir einstaklingnum og hversu fljótur hann er að ná taki á forritinu.

 

Ef einhverjar spurningar vakna eða fólk vill prufa tíma þá er emailið: asgeir.visir@gmail.com 

 

 

Curves tólið

Í þessari viku verður ekki kennd aðferð við vinnslu á mynd. Heldur myndum.

Tól sem við höfum vissulega notað en ekki kunnað almennilega á.

Þetta tól er að sjálfsögðu Curves og ætla ég að fara yfir basicið á þessu tæki. Í þetta skiptið erum við ekki með ákveðna mynd svo að auðveldast er bara að fá sér bjór og lesa yfir þennan texta til þess að skilja þetta verkfæri betur.

 

Ég bjó til nýtt Image og gradient-aði yfir með black-to-white gradient. þetta er gert til þess að auðvelda skilning þinn. (kemur í ljós á eftir)

 

picture-23

Curve er layer-based tæki sem effectar bara á layer eða valin svæði. Þetta þýðir að ef að maður ætlar að curva heila mynd þarf að flattena layer. Þetta getur verið vesen en vonandi verður úr þessu bætt í komandi gerðum Photoshop. 

Ef við gerum CMD-M kemur upp Curves glugginn (Image-adjustments-curves). Einsog sjá má kemur eftirfarandi  symetrískur fleygbogi (skál). 

picture-32

 

Það sem við sjáum hérna á þessu er nokkurnvegin ljós og skuggamagn myndarinnar… Þar sem dökkir litir eru skuggar og ljósir litir upplýstir hlutar.

Á hliðum kassans má sjá tvo ása, annarsvegar x-ás (láréttur) og y-ás (lóðréttur).

Ef við klikkum á línuna í horni fyrsta kassans (semsagt einn til hægri, einn upp) þá myndast örmsár kassi á línunni… Þetta er kassi sem hægt er að draga upp og niður og fram og til baka… Ég held að það séu engin takmörk fyrir því hvað hægt er að setja marga kassa á þessa línu en við ætlum að notast við 2, en það er yfirleitt meira en nóg.

Ef við prófum að taka litla kassan aðeins niður þá gerist magnaður hlutur við myndina. einsog sjá má.

 

picture-43

Dökki liturinn í myndinni eykst… Það kemur meira variety í dökku litina og myndin verður dýpri, allavega hvað varðar svörtu litina… 

 

Það sama gerist nema í öfuga átt ef við tökum efri hluta skálínunar og drögum hana upp… Þá fær maður fleiri ljósa liti og meira variety… Þegar þetta er gert á báðum endum línunar verður meiri dýpt í myndinni. Ergo, það eru færri litir í miðjunni (gráa litnum) sem myndar slikju á myndina og gerir hana flata…

Í Red, green eða blue virkar þetta nokkurn veginn svipað nema þar ertu að vinna með ákveðna litabreytingu… Ég ætla ekki að fara útí það þar sem ég kann lítið sem ekkert á þann valmöguleika, en vonandi hefur þetta útskýrt að hluta til eiginlega verkfærisins Curves. Prófið þið ykkur nú áfram á myndum sem þið hafið tekið eða finnið á netinu… :) Muna að haka við Preview til að sjá hvað þú ert að gera

 

-Vísir

 

ps. Ég held að ég pósti bara inn vikulega, það er ágætt… Leyfa fólki að spreyta sig aðeins áður en það fer í næsta…

Augu (Annarskonar útfærsla)

Í dag ætla ég að sýna hvernig hægt er að gera augu, sem fólk tekur ekki eftir, mjög eftirtektaverð.

ég er að nota þessa mynd af Gumma:

img_4448

Undirbúum myndina… einsog kennt er í fyrsta tutoriali…

 

duplicötum (CMD+J) layerin.

veljum svo augun og duplicötum þau aftur… Þá er notað Rectangular Marquee tool og dreginn kassi utan um augun og gert (cmd+J).

picture-11

Það fyrsta sem við gerum er að taka Dodge tool og velja svona 50% exposure á tólinu… það er næstum efst á skjánum. Svo doge-um við bláa litin aðeins í augunum þannig að hann verður ljósari… bara miðjuna samt:

picture-22

Svo tökum við burn tool og brennum hringina í kringum augun:

picture-31

Okei í sumum tilfellum getur þetta verið fallegt.. sérstaklega ef maður er að vinna með græn augu…

Þetta er svolítið geimverulegt svona einsog það er núna…

Nú gerum við screen, setjum oppacity á layernum í svona 75%.

picture-42Svo þurfum við að setja mask á þennan augnalayer… vegna þess að við viljum ekki hafa svona kassa utanum augun… ALT+klikka á mask takkann… þá hverfur allt. Nú tökum við hvítann soft brush og málum yfir augun… Þá kemur í ljós lýsing á augunum… Ég leyfi screen layernum líka að koma í augnhvítuna, hún verður töluvert hvítari…

picture-52

Hann er ennþá smá geimverulegur…

 

það sem við gerum þá er að klikka á thumbið(litlu myndina af augnakassanum í layerspallettunni) og höfum semsagt subjectið valið, ekki maskinn… og gerum Curves(CMD+M)(má einnig finna í Image-Adjustments-Curves…) Við gerum Ess-laga kúrvu sem lítur nokkurnveginn svona út:

picture-6Mikilvægari punkturinn er neðri punkturinn… Hann dregur úr geimverustemmingunni…

Þá er myndin svona…

Augun standa meira útúr myndinni… 

Eitt sem væri kannski gaman að laga, sem er ekki neitt vesen… og er mjög sniðugt, sérstaklega gagnvart bólum… Eru línurnar undir augunum(pokarnir).

Við notum Patch Tool (J) og drögum hring utan um pokana, veljum Source þarna uppi og höfum layerin sem er duplicataður af upprunalega layernum… Drögum svo með þessu tóli það sem við vorum búin að velja yfir á stóran stað sem er bara skinn(einsog t.d ennið)

picture-81

þannig erum við búin að fjarlægja pokann undan öðru auganu… Það þarf varla að segja fólki að gera þetta við hitt augað líka…

Þetta er mín útkoma:

picture-10

Einfalt og tekur ekki svo langan tíma :)

-Vísir

 

ps. Ef það er eitthvað torskilið, þá minni ég á comments… Einnig væri gaman ef fólk léti vita ef það er búið að gera þetta tutorial… Svo ég sé nú ekki að gera þetta fyrir engann :D

Halo (Lýsing að aftan sem flæðir inná subject)

Jæja, ég gerði víst eitthvað vitlaust tutorial síðast… Ég ætla nú að bæta fyrir það og gera einsog beðið var um…

Einsog alltaf að þá er þetta mín aðferð við að gera þetta… Það eru eflaust til margar aðrar, sumar betri, sumar verri…

Ég ætla að kenna hvernig á að gera svona með hvítan bakgrunn, en þetta er hægt að gera á hvernig bakgrunn sem er…nánast sama aðferð…

Byrjum á að undirbúa myndina með því að duplicata, læsa og allt það…(kennt í fyrsta tutoriali)

Ég fæ lánaðar oft myndir hjá vinkonu minni Fanney… Hún verður vonandi einn daginn “penni” hér á síðunni…

www.flickr.com/fanneyy

http://www.flickr.com/photos/fanneyy/2988452315/sizes/o/ þetta er myndin sem ég er að nota sem var tekin fyrir Viljann

 

allavega, ég byrja á að gera bakgrunnin hvítann… (W, fyrir wand tool… klikka á bakgrunnin og stroka út… ;) )

Þetta er kannski ekkert rosalega vandað, en hér er myndin eftir að ég er búinn að breyta bakgrunninum

fanneyjarmynd1

Jæja, hérna er myndin, með hvítum bakgrunni… Sést á borðanum fyrir neðan brjóstið að hann er ekki klipptur fallega… Allavega… við getum unnið með þetta í þessari æfingu.

það sem við gerum er: velja allan hvíta bakgrunnin, eyða honum… búa til nýjan layer sem er með hvítu “fill-i”… Semsagt bara hvítur layer… Veljum nú stelpuna, gerum mask á hana… Sem er í Layers palettunni, kassi með hring inní. Þegar við erum komin í maskinn þá tökum við stórann brush með 0 % í hardness og brushum með “svörtum”(sem þýðir að við erum að eyða af layernum) í kringum manneskjuna… Þannig fáum við þetta effect einsog það sé einhverskonar sterk lýsing í bakgrunni og jafnvel af hliðunum… Mjög gott er að hugsa hvernig þetta væri ef þetta væri í alvörunni, hvernig er lýsingin? Hvaðan kemur hún og hversu sterk er hún… Hversu sterk er lýsingin á þessum stað og hinum…

picture-21Svona er myndin núna hjá mér…

Lítur alltílagi út… En oft þegar það er t.d. sól í bakgrunni koma svona “sprotar” inná myndina… Það stafar af því að ljósgjafinn er meira þeim megin og sést jafnvel í hann… Þetta er oft kallað Flare eða lens flare…

Þetta má tækla með því að ná í brush sem lítur út einsog flare… Ég fann einhverskonar space brush set á Deviantart.com

http://fc99.deviantart.com/fs11/f/2006/176/1/6/anodyne_stock_space.zip

ég held að þetta eigi að virka…

Hægt er að loada brusha inní forritið svona:

picture-41

Svo er þetta bara spurning um að finna file-inn sem maður var búinn að downloada og setja hann þarna inn… Ég valdi síðan nokkra af brushunum og lék mér aðeins með þá… minnkaði þá og setti aðeins inná… Þetta er svolítið bara spurning um að fikta og sjá hvernig það lítur út… Einnig þarf svolítið að hugsa hvernig ljósgjafinn er staðsettur… Ef hann er fyrir aftan, vísar niður og á ská… Þá kemur flare-ið í svipaðri stefnu yfir subjectið… Ef hann er alveg beint á móti myndavélinni og svolítið fyrir aftan subjectið að þá kemur svona yfir allt subjectið á þeim stað… einsog ég hef það hjá mér… Vonandi skildist þetta ;)

 

svo vel ég þann stað þar sem hentar að hafa flare gjafann og þar sem kannski hugsanlega er aðeins meira af “gervi”lýsingunni okkar…Myndin mín lítur svona út…

picture-51

En hugsanlegt er að fá fallegri niðurstöður með öðrum brush-pökkum… Þetta er allavega ein hugmynd að því hvernig á að gera svona… Þetta er aðeins annað með bakgrunn sem er ekki hvítur, en hugmyndin er sú sama…

Vonandi gekk þetta vel… Annars er fínt að fá bara comment ef eitthvað virkar ekki og ég get þá útskýrt hvað þið eruð að gera vitlaust…

-Vísir

Halo (Geislabaugur)

Jæja, Árni Þór vildi fá geislabaug… Hér kemur geislabaugur… Nú er ég farinn að gera ráð fyrir að þið sem heimsækið þessa geysivinsælu síðu kunnið undirstöðuatriðin í því að undirbúa mynd fyrir vinnslu… Það má sjá sérstaklega vel útskýrt á fyrsta tutoriali…

Þetta Tutorial er gert á blackbook félaga míns, svo kannski er þetta ekki alveg eins og venjulega…

Allavega, ég opna nýja mynd…

http://www.flickr.com/photos/fanneyy/2316327935/sizes/o/ ég nota mynd sem Fanney vinkona mín kær tók fyrir nokkru síðan :)

Við gerum nýjan Layer og veljum elliptical Marquee tool (M). Gerum svona hring sem “liggur”.picture-1

Við stroke-um hringinn sem er á þessum nýja layer. Edit-Stroke

Stroke-um 10 px í litnum ffffff (Sem er alveg hvítur)

Núna erum við komin með ógurlega fínan hring… Hann er ekkert raunverulegur þannig séð, en hann er gott form.

Við förum í blending options sem er takkinn þar sem stendur fx og veljum blending options.

picture-2

Veljum Inner Glow (Klikkum á textann til að fá upp valmynd fyrir Inner Glow). Hér má svo sjá það sem ég valdi, ég mæli með því að gera svipað…

picture-3

Outer glow:

picture-4

Pattern Overlay:

picture-5

Jæja, þá er þetta farið að líta aðeins betur út…

Þetta er kannski ekki fullkomið en þetta er ein útgáfa af þessu…

Til að gera þetta aðeins raunverulegra getum við gert smá glow á manneskjuna…

Þá búum við til nýjan layer, setjum hann fyrir neðan layerin af “haloinu”. Breytum honum í Overlay í blending layer valmyndinni. Veljum 60%.

picture-7Veljum brush með lítið hardness og gerum eitthvað fínt á kollinn á greyinu…

picture-8

Jæja… Kannski ekki fallegasti Halo í heimi, en hver veit svosum hvernig svona drasl lítur út :)

Og lýsingin virðist koma frá haloinu :D

-Vísir

Að stækka brjóst?

Góðann daginn, svolítið langt síðan síðast… sorry ;)

Í dag ætla ég að kenna hvernig á að stækka hluti… hvort sem það eru brjóst, augu eða nef… eða hvað sem það nú er…

 

Byrjum á að opna mynd:

gerum það sem við gerum alltaf…

 

breyta background í layer…

double clicka á background og ýta svo á enter þegar glugginn opnast. Duplicata layerin (CMD+J) og læsa neðri layernum, með lásnum í layers palettinu… (Útskýrt í fyrsta tutoriali með mynd og öllu)

 

Margir myndu nota Liquify… tólið. Það er svosum í lagi og virkar í einstaka tilfellum með létt hardness… En við erum meira elite (1337) en það…

 

Það sem við gerum er að velja Lasso Tool (L) og velja takmarkið sem við ætlum að stækka… tökum sem dæmi að ég ætli að stækka augað á Megan…(daman sem ég er að nota mynd af)

 

ég lasso-a frekar stórann hring í kringum augað á henni…

svo förum við í Filter-distort-pinch.

við veljum svona c.a. -10 % gildi fyrir þetta… Ástæðan fyrir því að við viljum ekki gera meira er að þá fer þetta að vera of mikið og óraunverulegt… Í staðinn, ef þetta er of lítið þá gerum við bara aftur… Ef maður vill endurtaka síðasta Filter action sem maður gerði þá er það bara cmd+F…

 

þar höfum við það :) Einfalt, stutt og áhrifaríkt :P

-Vísir

Einfaldur skuggi

Að gera einfaldann skugga í PS ætti ekki að vera svo flókið, er það nokkuð?

Það sem coverað er : Gaussian blurr, gera gradient, velja klippilínu á layer, Perspective breytingar, Opacity á layer.

Það getur verið mjög erfitt að búa til “realtistic” skugga á manneskju, sérstaklega ef það er fleiri en ein manneskja á myndinni… Við ætlum að byrja rólega og gera skuggakast af kúlu, ég byrjaði bara á að gera litla kúlu sem má nálgast með því að klikka á hana:

Ég byrja með skjal sem er 1000 x 1000 pxl í 180 ppi gæðum… (cmd+N) 

Teikna kúluna og hef hana sem einn layer. Ef þú notar kúluna mína að þá þarftu að ýta á W og nota Magic wand tool og klikka á hvítu fletina í kringum kúluna. Þú getur ýtt á Backspace (Stroka út takkann) og þá hverfur hvíti kassinn utanum… Ef þú hefur opnað fileinn og kúlan er background layer þá er nóg að tvíklikka á layerin og ýta á enter.. Búa svo til nýjan layer og setja hann undir kúlu layerinn.. Velja paint bucket tool, velja hvítann lit og klikka einu sinni. Þá kemur hvítur layer undir og þá er hægt að eyða út hvíta draslinu utan um kúluna.

Við gerum nýjan layer, en það er gert með því að velja merkið sem er næst lengst til hægri í layer palette.

Við hliðina á ruslinu.

Það sem við gerum núna er að velja bara kúluna. Þetta má gera á nokkra vegu, en við ætlum að nýta okkur það að öll kúlan er á einum layer og klikkum því á thumbnailið og höldum inni cmd (ctrl fyrir windows).

Þá sést svona klippilína utan um kúluna okkar. Með nýja layerin valin búum við til Gradient, sem má finna í “málningafötutólinu.” Shortcut fyrir þetta tól er G. Við ætlum ekki að nota paint bucket tool heldur gradient tool sem er á sama stað. Þar má hægri klikka og velja gradient tool eða gera SHIFT+G. 

Þegar þetta tól er valið breytist bendillinn í kross. Það er ekki nóg að klikka í þessu tóli. Við byrjum á að stilla litinn okkar og veljum svartann sem foreground. Shortcut er D. 

Núna ætlum við að breyta þannig að gradientinn okkar fari ekki úr svörtum í hvítann heldur úr svörtum í engann (Black-transparent).

Við förum í Edit Gradient gluggann:

Klikkum á píluna sem er hægra meginn. Þar veljum við úr svörtum í svona köflóttann. 

Hjá mér er það gæji númer 2. Hann ætti að vera það hjá öllum.

Þá erum við búin að velja rétt tól með réttu stillingunum.

Nú drögum við krossinn frá neðsta hluta kúlunar og aðeins yfir efsta hlutann. Höldum SHIFT inni á meðan við drögum til að fá beina línu… Það er mikilvægt.

Núna sjáum við að kúlan dekkist, mest neðst og dregur svo úr því á leiðinni efst.

Núna drögum við skuggalayerin niður fyrir kúlulayerin og þá hverfur allur svarti liturinn…

Það sem við gerum núna er að ýta á CMD+T (CTRL+T) með skuggalayerin valinn…

Þá mynast svona kassi í kringum kúluna. Við setjum bendilinn inní efsta kassann í miðjunni og höldum inni CMD (CTRL).  Klikkum og höldum inni vinstri músatakkanu og drögum niður og til vinstri… Þá sést hvernig að skugginn kastast frá kúlunni. Gott er að hugsa að maður sé með sléttan flöt í bakgrunn og hugsa hvernig skuggin myndi kastast á slíkan flöt. 

Þetta ætti að lýta nokkurn vegin svona hjá þér…

Þetta lítur ekkert svo illa út… Við viljum ekki hafa skuggan alveg svona nákvæman og ætlum því að “Gaussian blurra” skuggann okkar… Það er ekkert command fyrir almennu filterana svo þú þarft að velja filter-blur-gaussian blurr. Nú fer algjörlega eftir viðfangsefni og stærð og upplausn myndarinnar hvaða “Value” við notum… Ég ætla að nota 10.0 pixels… Þá fáum við fallega blurraðan skugga.

Núna höfum við gert skugga af einföldum hlut… Ef að skugginn stendur framar en kúlan er nóg að ýta á V og nota örvarnar aðeins til að færa skuggan.

Ef að skugginn er of dökkur má fara í layers pallette menu og við hliðina á Normal(Blending mode valmyndinni) stendur opacity. Þar er hægt að fikta svolítið í stillingunni. Þetta má lækka niðrí svona 75%.

Nú geturu fiktað við fleiri hluti… Meðal annars stafi og þess háttar…

 

-Vísir