Hvítaðar tennur (CMD = CTRL fyrir windows)

Jæja, fyrsta Tuto-ið (tutorial) sem ég geri… Vonandi verður það skiljanlegt… Ég setti inn mynd af mér frekar gula svo að munrinn sést ágætlega…

 

Ég reyni að gera þetta eins skiljanlegt og mögulega er hægt. Ég geri ráð fyrir að fólk hafi áður unnið með photoshop. Ef þú hefur aldrei unnið með Photoshop en langar að læra ættu upplýsingarnar sem fylgja að vera næginlega góðar til þess að þú getur klórað þig fram úr þessu. Ég læt fylgja með myndir, ég læt einnig fylgja flýtiskipanir þegar þær eiga við.

Farið er yfir hvernig á að maska, hvernig á að gera svart/hvítt, hvernig á að duplicata layer, hvernig á að læsa layer og rétt farið inná hvernig á að gera Levels.

 

Við byrjum að opna mynd í góðum þokkalegum gæðum. 180 ppi (pixels per Inch) er ásættanlegt.

Ég nota mynd af sjálfum mér þar sem ég er ekki með neitt ógurlega módelhvítar tennur.

Það fyrsta sem við gerum alltaf við myndir er að við aflæsum myndinni… Þegar farið er í File-open og mynd opnuð þá opnast hún alltaf sem bakgrunnur, svo fremi sem hún er í jpg staðlinum. Þetta þýðir að margir kostir til vinnslu eru ekki opnir og þessu breytir maður alltaf ef vinna á með myndina. gott að venja sig á það. 

Við tvíklikkum á thumbnailið (litlu myndina). Núna erum við að breyta þessum bakgrunni í layer. Við veljum nafn á hann og ýtum á enter eða Ok.

Það sem við gerum núna, til þess að við eigum alltaf eitt eintak af myndinni sem er ekkert snert þá klikkum við á lásinn sem er lengst til hægri af 4 táknum fyrir ofan layerin. Þá læsist layerin. Þá erum við eiginlega komin með sama bakka og áður en við getum núna staðsett layer undir þennan layer og unnið með hann ef okkur sýnist. Við duplicate-um layrin… Það má gera á fleiri en einn veg en ég legg áherslu á shortcut… Layerin er valin (blár), og ýtum á cmd+J (ctrl+J fyrir Windows).

Þá er kominn nýr layer.

Nú tökum við allan lit af efri layernum og gerum cmd+shift+U. Þetta má einnig gera Image – adjustments- Desaturate.

 

Einsog sjá má er öll myndin svarthvít og ef vel er að gáð að þá eru tennurnar ekki gular lengur heldur temmilega hvítar… Vinalegt…

Það sem við gerum núna er að við setjum á svart/hvíta layerin mask.

Við alt-klikkum á merki sem er einsog mappa eða kassi með hring inní. Þetta er í Layers palettinu (þar sem layerarnir eru). Ástæðan fyrir því að við höltum alt inni og klikkum er að þá hverfu allur layerinn… Þá sést svona einsog svartur kassi við hliðina á thumbnailinu… þetta sýnir að myndin er alveg falin með mask. Núna ætlum við að zoom-a að munninum og velja hvítann lit(D – X) og mjúkann brush (B). til að vera viss um að brushinn er mjúkur er hægri klikkað og athugað hvort að hardness sé ekki í svona sirka 0-50%. Svo er bara að brush-a yfir tennurnar og þá sést hvernig svart/hvíti layerinn kemur í gegn. Gott er að minnka brushinn í nákvæmari aðgerðum… Ef eitthvað fer útfyrir þá er nóg að breyta yfir í svartan lit og brusha yfir… Þannig virkar mask. Þegar þetta er komið sést að við höfum gert tennurnar ágætlega hvítar… En þær eru ekki raunverulegar. Þær virka svolítið feik og þar sem skuggarnir voru í jöðrunum að þar eru þær alveg svartar… þetta má laga með því að klikka á thumbnailið af myndinni sem er svarthvít… kemur svona einsog kassi utan um hana… Þá má gera levels (cmd+L) og stilla inn tölurnar sem ég hef gert hér að neðan…

Einnig er hægt að gera levels með því að fara í Image – adjustments – levels.

Þegar þetta er komið ættu tennurnar að vera orðnar hvítar og módellegar… 

 

Ef það eru einhverjar spurningar, ekki hika við að commenta… Ég veit að þetta er frekar mikið byrjenda tutorial en það er margt hægt að læra á þessu :)

-Vísir

4 Responses to Hvítaðar tennur (CMD = CTRL fyrir windows)

  1. Þetta er brill! ;) komin í bookmark!

  2. Snillingur ;)

  3. snilld, save-a síðuna þín í favorites og fylgist með þér!

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s