Í dag förum við í gegnum það hvernig við breytum augnalit. Það er einfalt og skemmtilegt.
Það er til ógurlegt magn af tutorials um það hvernig á að breyta lit á hlutum. Það er eflaust eitthvað það auðveldasta sem er hægt að læra og má segja að þú kunnir það nú þegar… Þ.e.a.s ef þú hefur lesið og prófað tannatutoið… Þetta er nánast alveg það sama og gert er þar nema í staðinn fyrir að gera svarthvítt að þá gerum við svolítið annað…
Við byrjum á að opna mynd af módelinu. Ég vona að Gunna fyrirgefi mér þetta
Það sem við gerum alltaf er að gera duplicate…
tvíklikkum á layerin og ýtum á enter. gerum svo cmd+J og læsum neðri layernum með lásnum.
Ætti að lýta svona út:
Núna gerum við annað duplicate sem er aftur cmd+J. Shockerandi!!
Þessum Layer ætlum við að breyta. Ef við gerum núna cmd+U þá opnast Hue/saturation glugginn okkar. Hann má líka finna í Image-adjustments-hue/saturation…
Hérna fiktum við bara með hue og saturation… Ekki vera að fikta mikið í lightness… það tekur í burtu mikið af detailum úr augunum.
Við viljum ekki velja colorize því að þá er einsog við skellum litafilmu yfir allan pakkann og þá fyrst fer þetta að líta illa út. Við geymum colorize þar til síðar.
Núna lítur módelið okkar út einsog illa brenndur afgani. Við viljum væntanlega ekki hafa það þannig svo við setjum mask á módelið okkar.
Það er þriðja táknið frá vinstri… Svona kassi með hvítum hring inní. Við höldum alt takkanum inni og klikkum á þetta tákn… Muna að hafa rétta layerin valin. Þá hverfur afganinn og layerin sem var fyrir neðan verður fullkomlega sjáanlegur… Nú veljum við brush (B) sem er jafn stór og augað á módelinu og klikkum. Muna að hafa hvíta litinn valinn.
Núna er mjög líklegt að smá litum hafi smitast á augnlokið eða einhversstaðar hugsanlega í kring. það lögum við með því að minnka brushinn og skipta yfir í svartann (X). Svo “málum” við bara í burtu litinn af augnlokinu…
Nú höfum við lokið við að breyta augunum á henni… En hvað ef okkur finnst þetta of lítil breyting og við viljum geta valið litinn sjálf?:O
Það er nokkuð einfalt.
Þá gerum við eftirfarandi.
Við búm til nýjan layer með því að velja takkan næst lengst til hægri í layer palettinu. (Mynd af þessu er hér að ofan) Við veljum okkur lit með því að klikka á forground color kassann.
Hjá mér er hann rauður. Veljið ykkur einhvern lit.
Brushiði núna yfir augun þannig að þau sjást ekki fyrir litnum…
Nú ætlum við að gera svolítið nýtt sem kallast layer blending mode.
Þetta sem er merkt Normal hjá mér. Við klikkum á það og veljum Overlay.
Þá blandast rauði liturinn í ákveðinni lýsingu í ákveðnu magni.
Þetta er nú ekki fallegt einsog það er. Þá tökum við maskið sem við vorum búin að gera í layernum sem er fyrir neðan og drögum maskið yfir á þennan layer. Þá verður myndin svolítið furðuleg. Við deletum layernum sem er fyrir neðan sem var upphaflega með maskið. Nóg er að klikka á þann layer og klikka svo á ruslatunnuna sem er lengst til hægri í Layer palettunni.
Nú snyrtum við aðeins maskið svo að nýju lituðu augun okkar séu raunveruleg. En nú er eitt vandamál. Overlay veldur því að hvíti liturinn litast líka og flassið sem endurspeglast í augunum á henni er líka rautt…
Þá björgum við því með því að maska yfir þar sem hvíti liturinn kemur..
Þetta ætti að lýta svona út þá:
-Vísir






klassi!