Halo (Lýsing að aftan sem flæðir inná subject)

Jæja, ég gerði víst eitthvað vitlaust tutorial síðast… Ég ætla nú að bæta fyrir það og gera einsog beðið var um…

Einsog alltaf að þá er þetta mín aðferð við að gera þetta… Það eru eflaust til margar aðrar, sumar betri, sumar verri…

Ég ætla að kenna hvernig á að gera svona með hvítan bakgrunn, en þetta er hægt að gera á hvernig bakgrunn sem er…nánast sama aðferð…

Byrjum á að undirbúa myndina með því að duplicata, læsa og allt það…(kennt í fyrsta tutoriali)

Ég fæ lánaðar oft myndir hjá vinkonu minni Fanney… Hún verður vonandi einn daginn “penni” hér á síðunni…

www.flickr.com/fanneyy

http://www.flickr.com/photos/fanneyy/2988452315/sizes/o/ þetta er myndin sem ég er að nota sem var tekin fyrir Viljann

 

allavega, ég byrja á að gera bakgrunnin hvítann… (W, fyrir wand tool… klikka á bakgrunnin og stroka út… ;) )

Þetta er kannski ekkert rosalega vandað, en hér er myndin eftir að ég er búinn að breyta bakgrunninum

fanneyjarmynd1

Jæja, hérna er myndin, með hvítum bakgrunni… Sést á borðanum fyrir neðan brjóstið að hann er ekki klipptur fallega… Allavega… við getum unnið með þetta í þessari æfingu.

það sem við gerum er: velja allan hvíta bakgrunnin, eyða honum… búa til nýjan layer sem er með hvítu “fill-i”… Semsagt bara hvítur layer… Veljum nú stelpuna, gerum mask á hana… Sem er í Layers palettunni, kassi með hring inní. Þegar við erum komin í maskinn þá tökum við stórann brush með 0 % í hardness og brushum með “svörtum”(sem þýðir að við erum að eyða af layernum) í kringum manneskjuna… Þannig fáum við þetta effect einsog það sé einhverskonar sterk lýsing í bakgrunni og jafnvel af hliðunum… Mjög gott er að hugsa hvernig þetta væri ef þetta væri í alvörunni, hvernig er lýsingin? Hvaðan kemur hún og hversu sterk er hún… Hversu sterk er lýsingin á þessum stað og hinum…

picture-21Svona er myndin núna hjá mér…

Lítur alltílagi út… En oft þegar það er t.d. sól í bakgrunni koma svona “sprotar” inná myndina… Það stafar af því að ljósgjafinn er meira þeim megin og sést jafnvel í hann… Þetta er oft kallað Flare eða lens flare…

Þetta má tækla með því að ná í brush sem lítur út einsog flare… Ég fann einhverskonar space brush set á Deviantart.com

http://fc99.deviantart.com/fs11/f/2006/176/1/6/anodyne_stock_space.zip

ég held að þetta eigi að virka…

Hægt er að loada brusha inní forritið svona:

picture-41

Svo er þetta bara spurning um að finna file-inn sem maður var búinn að downloada og setja hann þarna inn… Ég valdi síðan nokkra af brushunum og lék mér aðeins með þá… minnkaði þá og setti aðeins inná… Þetta er svolítið bara spurning um að fikta og sjá hvernig það lítur út… Einnig þarf svolítið að hugsa hvernig ljósgjafinn er staðsettur… Ef hann er fyrir aftan, vísar niður og á ská… Þá kemur flare-ið í svipaðri stefnu yfir subjectið… Ef hann er alveg beint á móti myndavélinni og svolítið fyrir aftan subjectið að þá kemur svona yfir allt subjectið á þeim stað… einsog ég hef það hjá mér… Vonandi skildist þetta ;)

 

svo vel ég þann stað þar sem hentar að hafa flare gjafann og þar sem kannski hugsanlega er aðeins meira af “gervi”lýsingunni okkar…Myndin mín lítur svona út…

picture-51

En hugsanlegt er að fá fallegri niðurstöður með öðrum brush-pökkum… Þetta er allavega ein hugmynd að því hvernig á að gera svona… Þetta er aðeins annað með bakgrunn sem er ekki hvítur, en hugmyndin er sú sama…

Vonandi gekk þetta vel… Annars er fínt að fá bara comment ef eitthvað virkar ekki og ég get þá útskýrt hvað þið eruð að gera vitlaust…

-Vísir

2 Responses to Halo (Lýsing að aftan sem flæðir inná subject)

  1. Ólöf Kristinsdóttir

    Frábær síða hjá þér.
    Hangi inná henni heilu kvöldin og fikra mig áfram…með þinni hjálp. Mklu betra að fá þetta á ylhýra móðurmálinu en á enskum tutorials…
    Glæsilegt.

  2. hahaha mjög gott að heyra :)

    allt svona kemur manni alltaf til að vilja gera meira :)

    ertu búin að gera mikið af æfingunum?

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s