Curves tólið

Í þessari viku verður ekki kennd aðferð við vinnslu á mynd. Heldur myndum.

Tól sem við höfum vissulega notað en ekki kunnað almennilega á.

Þetta tól er að sjálfsögðu Curves og ætla ég að fara yfir basicið á þessu tæki. Í þetta skiptið erum við ekki með ákveðna mynd svo að auðveldast er bara að fá sér bjór og lesa yfir þennan texta til þess að skilja þetta verkfæri betur.

 

Ég bjó til nýtt Image og gradient-aði yfir með black-to-white gradient. þetta er gert til þess að auðvelda skilning þinn. (kemur í ljós á eftir)

 

picture-23

Curve er layer-based tæki sem effectar bara á layer eða valin svæði. Þetta þýðir að ef að maður ætlar að curva heila mynd þarf að flattena layer. Þetta getur verið vesen en vonandi verður úr þessu bætt í komandi gerðum Photoshop. 

Ef við gerum CMD-M kemur upp Curves glugginn (Image-adjustments-curves). Einsog sjá má kemur eftirfarandi  symetrískur fleygbogi (skál). 

picture-32

 

Það sem við sjáum hérna á þessu er nokkurnvegin ljós og skuggamagn myndarinnar… Þar sem dökkir litir eru skuggar og ljósir litir upplýstir hlutar.

Á hliðum kassans má sjá tvo ása, annarsvegar x-ás (láréttur) og y-ás (lóðréttur).

Ef við klikkum á línuna í horni fyrsta kassans (semsagt einn til hægri, einn upp) þá myndast örmsár kassi á línunni… Þetta er kassi sem hægt er að draga upp og niður og fram og til baka… Ég held að það séu engin takmörk fyrir því hvað hægt er að setja marga kassa á þessa línu en við ætlum að notast við 2, en það er yfirleitt meira en nóg.

Ef við prófum að taka litla kassan aðeins niður þá gerist magnaður hlutur við myndina. einsog sjá má.

 

picture-43

Dökki liturinn í myndinni eykst… Það kemur meira variety í dökku litina og myndin verður dýpri, allavega hvað varðar svörtu litina… 

 

Það sama gerist nema í öfuga átt ef við tökum efri hluta skálínunar og drögum hana upp… Þá fær maður fleiri ljósa liti og meira variety… Þegar þetta er gert á báðum endum línunar verður meiri dýpt í myndinni. Ergo, það eru færri litir í miðjunni (gráa litnum) sem myndar slikju á myndina og gerir hana flata…

Í Red, green eða blue virkar þetta nokkurn veginn svipað nema þar ertu að vinna með ákveðna litabreytingu… Ég ætla ekki að fara útí það þar sem ég kann lítið sem ekkert á þann valmöguleika, en vonandi hefur þetta útskýrt að hluta til eiginlega verkfærisins Curves. Prófið þið ykkur nú áfram á myndum sem þið hafið tekið eða finnið á netinu… :) Muna að haka við Preview til að sjá hvað þú ert að gera

 

-Vísir

 

ps. Ég held að ég pósti bara inn vikulega, það er ágætt… Leyfa fólki að spreyta sig aðeins áður en það fer í næsta…

6 Responses to Curves tólið

  1. Frábær síða :)
    gott að fá svona íslenskar leiðbeiningar :)

    Veistu hvernig á að gera bakgrunn alveg svartan ??
    það eru svo margr sem eru að taka myndir (td.af börnum) og svo er bakgrunnurinn hafður svartur, en svo gerður enn svartari í photoshop. æi vona þú skiljir mig :)

  2. ertu að tala um að gera svartann bakgrunn, ennþá svartari?:O

  3. Þú talar um að curves sé layer based tæki og vonar eftir endurbótum í komandi útgáfum. Þú getur allveg hætt að bíða. Getur bæði búið til curves adjustment layer með því að smella á svarta og hvíta hringinn í layer pallettunni og velja curves eða haldið inni ctrl+shif+c. Ég sem ljósmyndari nota nánast alltaf curves sem adjustment layer nema í þeim tilvikum sem ég er að beita curves á ákveðinn maska. Curves sem adjustment layer hefur líka þann kost að hafa sinn eiginn maska.
    Þú talar eiginlega ekkert um að beita curves á aðrar litarásir heldur en hina sameinuðu RGB og hvað þá nota curves í öðrum litarýmum. Þú talar ekkert um að setja white point, gray point eða black point eða aðra möguleika curves sem gera það að öflugasta litaleiðréttingartóli sem til er. Eins og þú lýsir curves þá gætir þú nánast bara verið að nota levels.
    En samt um að gera að tala um þessi tól og fá fólk til að prófa þau.

  4. Og Hdd þetta með svartan bakgrunn er eitthvað sem á að gerast í myndatökunni sjálfri með góðri stjórnun á ljósi. Hef séð nokkur dæmi undanfarið að menn séu að nota svartan brush eða burn tólið. Það er algjörlega vitlaus leið og skilar alltaf lélegum myndum. Ef það eru hins vegar einhverjir detailar sem sjást í bakgrunni eftir töku þá má gera það allveg svart með einmitt curves og þá draga svarta sleðan aðeins inn að miðju. Hins vegar verður þó að passa að það geri ekki illt hjá viðfangsefninnu þ.e. barninu.

  5. hehe Þakka þér kærlega Arnar Birgisson, fyrir þitt innlegg. Einsog ég segi í About er ég engann veginn legend í þessu forriti, en ég vil allavega reyna að deila því sem ég kann fyrir fólki sem minna kann og kannski kveikja þá áhuga. En þar sem ég hef nánast aldrei tekið mynd á ævi minni er ég ekki með mikla kunnáttu í litaleiðréttingum og öllu þessu… Ég reyndar vissi af þessu með Ajdusment layer, en ég hef ekki tileinkað mér það næginlega mikið :)

    en þakka gott innlegg, ég kíki á þetta þegar ég kem heim úr löngu ferðalagi á næsta ári :D

  6. Takk fyrir þetta búin að prófa og virkar vel þetta curves tól :)

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s