Það verður enginn góður í photoshop á einu kvöldi. Það verður enginn góður í photoshop á einni viku. Það verður enginn góður í photoshop á einum mánuði…
Að læra á jafn flókið forrit og Photoshop tekur mörg ár. Að læra eina og eina aðferð við hinar ýmsu myndvinnslur tekur eitt kvöld. Kannski einn klukkutíma eða minna. Allt í allt eru það þessar litlu aðferðir sem gerir mann færann á þessu sviði. Persónulega mæli ég með góðri tónlist, og fullri einbeitingu á meðan maður er að gera svona æfingu (tutorial). En hver hefur sína hentisemi…
Fyrir mitt leyti hef ég verið að lesa mér til og skoða og æfa mig í bráðum 6 ár. Ég kann í rauninni mjög lítið á photoshop en þetta er allt að koma. Fyrsta árið gerði ég ekki annað en að æfa mig í tutorials á Ensku. Fannst vanta svona á íslensku og að geta sent fyrirspurnir og ef ég lenti í einhverju veseni að geta spurt hvernig ég ætti að klóra mig útúr því. Það gat verið pirrandi.
frábært hjá þér að hugsa svona vel um þá sem lítið sem ekkert kunna….
glæsilegt haltu áfram að koma með show how